Öll verkefni

Makromatur

Snjallsímaapp með uppskriftum, matseðlagerð, matardagbók og innkaupalista

Óvirkt
Makromatur í símanum
Þrjú skjáskot úr Makromats-appinu

Hvað er Makromatur?

Eins og margir aðrir ákvað ég að reyna að lifa aðeins heilsusamlegra lífi. Sumarið 2025 byrjaði ég að mæta reglulega í ræktina og hafði þá auðvitað meiri áhuga á að borða betur og finna hollari uppskriftir. Ég rak mig þó alltaf á sömu vandamálin. Uppskriftirnar voru oft faldar fyrir aftan langan texta, mælieiningarnar hentuðu illa, sum hráefni voru ekki auðfáanleg á Íslandi, ég gat ekki auðveldlega breytt skammtastærðum og það var engin þægileg leið til að vista uppskriftirnar sem mér líkaði á einum stað. Eftir að hafa kvartað reglulega yfir þessu við bróður minn, sem hefur mikinn áhuga á líkamsrækt og næringu, sagði hann mér frá hugmynd sinni um að gefa út uppskriftabók og selja hana í verslunum. Ég stakk þá upp á því að í stað þess að byrja á hefðbundinni bók gætum við búið til einfalda vefsíðu með aðgangsstýringu að uppskriftunum hans. Hugmyndin var að leysa öll þau vandamál sem ég hafði sjálfur verið að lenda í og byggja betri upplifun í kringum uppskriftirnar. Þá byrjaði ballið fyrir alvöru.

Frá vef yfir í app

Makromatur byrjaði sem vefkerfi og var lengi þróaður sem slíkur. Eftir því sem verkefnið stækkaði varð þó sífellt skýrara að vefurinn hentaði illa því sem fólk var í raun að nota kerfið í. Matseðlagerð, innkaupalisti og matardagbók eru hlutir sem maður grípur í yfir daginn, oft standandi úti í búð eða inni í eldhúsi, og þá er síminn tækið sem er alltaf við höndina. Ég tók því þá ákvörðun að færa alla notendaupplifunina yfir í snjallsímaapp. Appið er skrifað í React Native með Expo og talar við sama Payload-bakendann og vefurinn gerði, þannig að gagnamódelið, aðgangsstýringin og allt efnið héldu sér óbreytt. Það gerði mér kleift að endurhugsa viðmótið frá grunni fyrir síma án þess að byrja upp á nýtt á bakendanum. Í leiðinni fékk appið dökkt viðmót sem passar mun betur við þá stemningu sem ég vildi ná fram og gerir vöruna auðþekkjanlegri.

Mitt hlutverk

Ég hef séð um alla hönnun, framendaþróun og bakendaþróun Makromat. Eins og áður hefur komið fram er bakendaþróun þó ekki mitt helsta sérsvið og því þurfti ég að finna leið til að byggja kerfið upp á þann hátt að ég gæti treyst uppbyggingunni og viðhaldið henni til lengri tíma. Eftir nokkra leit kynntist ég CMS-kerfinu Payload, sem leysti mörg af þeim vandamálum sem ég stóð frammi fyrir. Áætlunin var að sjá sjálfur um hönnun og framendaþróun en nýta Claude Code sem aðstoð við þróun bakendans. Ég vildi þó ekki treysta gervigreind einni fyrir allri uppbyggingu bakendans. Payload gaf verkefninu skýran grunn með meðal annars innbyggðu notenda- og aðgangskerfi, vel skilgreindri collection-uppbyggingu og ítarlegum leiðbeiningum. Það gerði mér kleift að skilja sjálfur hvernig kerfið virkaði, yfirfara útfærslurnar og tryggja að Claude Code fylgdi fyrirfram skilgreindri uppbyggingu í stað þess að búa til sérlausnir án skýrs samhengis. Þessi nálgun gerði mér kleift að vinna hraðar, en um leið halda betri yfirsýn og stjórn á því hvernig bakendinn var byggður upp.

Lærdómur

Þetta er eitt tímafrekasta verkefni sem ég hef tekið að mér. Upphaflega hugmyndin var töluvert einfaldari: að byggja upp vettvang fyrir uppskriftir og gera notendum auðveldara að finna, vista og nota þær. Eftir töluverða vinnu varð hins vegar ljóst að uppskriftir einar og sér væru líklega ekki nægjanlegt virði til að byggja sjálfbært viðskiptamódel í kringum kerfið. Til þess að fólk sæi raunverulegt gildi í þjónustunni þurfti hún að gera meira en að birta uppskriftir. Hún þurfti að hjálpa notandanum í gegnum stærri hluta af ferlinu, frá því að ákveða hvað ætti að vera í matinn og yfir í það að skipuleggja innkaupin. Þar hófst það sem má líklega kalla feature creep. Verkefnið stækkaði smám saman eftir því sem nýjar þarfir komu í ljós. Ég bætti við matseðlakerfi sem getur sett saman vikulegan matseðil, innkaupakerfi sem reiknar út áætlaðan kostnað við máltíðir og vikuna í heild, ásamt því að bera saman hvar sé hagkvæmast að versla hráefnin. Samhliða þessu varð einnig nauðsynlegt að byggja upp sérstakt stjórnborð fyrir starfsfólk. Þar þarf að vera hægt að fylgjast með því sem gerist í kerfinu, halda utan um efni og notendur og aðstoða viðskiptavini, meðal annars með því að skoða stöðu áskrifta og önnur gögn sem tengjast þjónustunni. Verkefnið er því orðið mun stærra og flóknara en upphaflega stóð til. Það sem byrjaði sem einföld uppskriftasíða hefur þróast yfir í fjölþætt kerfi sem sameinar uppskriftir, matseðlagerð, innkaupaskipulag, verðupplýsingar og rekstrartól. Eitt af því stærsta sem ég hef lært af verkefninu er hversu erfitt það er að þróa svona stórt kerfi einn. Þegar sama manneskjan sér um hugmyndavinnu, hönnun, framenda, bakenda, gagnamódel, prófanir og stöðuga þróun á vörunni verður umfangið fljótt mikið. Verkefnið hefur kennt mér mikið, en líka sýnt mér hversu mikilvægt gott samstarf og skýr afmörkun eru þegar verið er að byggja stærri stafræna vöru.

Hvað hefði ég gert öðruvísi?

Ég var lengi að finna rétta lokastílinn fyrir hönnun kerfisins. Ég fór í gegnum þrjár til fjórar stærri endurhannanir áður en ég lenti loksins á þeirri stefnu sem mér fannst passa fullkomlega við Makromat, og það var ekki fyrr en ég færði vöruna yfir í app að hún small endanlega saman. Þegar sú hönnun fór að taka á sig mynd fann ég strax að þetta væri útlitið og ímyndin sem verkefnið þyrfti. Ef ég hefði áttað mig fyrr á því að þetta ætti alltaf að vera app hefði ég sparað mér töluverða vinnu á vefnum. Ef ég myndi byrja verkefnið aftur í dag myndi ég einnig leggja mun meiri áherslu á skipulag frá upphafi. Ég hefði skipt þróuninni niður í skýrari áfanga, skilgreint hvað ætti að tilheyra hverri útgáfu og ákveðið fyrr hvaða eiginleikar væru nauðsynlegir fyrir fyrstu nothæfu útgáfuna og hvað mætti bíða. Sem betur fer er verkefnið enn í virkri þróun og ég hef því tækifæri til að bæta þessi vinnubrögð eftir því sem þróunin heldur áfram. Stefnt er að því að Makromatur fari í lokaðar notendaprófanir undir lok sumars 2026, þar sem hægt verður að safna raunverulegri endurgjöf áður en næstu skref verða tekin.

Skjáskot

Forsíðan
Forsíða Makromats-appsins
Matseðillinn
Matseðill dagsins í Makromat
Uppskriftasafnið
Uppskriftasafnið í Makromat
Matardagbókin
Matardagbókin í Makromat
Mínar síður
Mínar síður í Makromat
Stillingarnar
Stillingar í Makromat

Tæknin

React NativeExpoTypeScriptPayload CMSReact EmailHugeIcons