SapphireMC
Sérsmíðaður vefur og verslun fyrir Minecraft samfélag.
Yfirlit verkefnisins
SapphireMC er Minecraft samfélag sem býður upp á fjölbreytta leikjamáta. Teymið hafði samband við mig eftir að hafa séð fyrri verkefni Spaugs innan leikjahýsingargeirans og óskaði eftir aðstoð við vandamál sem það hafði verið að glíma við á fyrri Tebex-vefnum sínum. Helsta vandamálið var einfaldlega hraðinn. Vefurinn var byggður á hýstri Tebex lausn með aðkeyptu þema sem hafði ekki verið hannað sérstaklega út frá þörfum SapphireMC. Upplifunin var hæg og þung í notkun, sem gerði kaupferlið óþarflega fyrirferðarmikið. Ég hef alltaf haft þá trú að því hraðari og einfaldari sem netverslun er í notkun, því meiri líkur séu á að áhugasamur viðskiptavinur klári kaupin. Eftir að hafa skoðað þá möguleika sem stóðu til boða ákváðum við því að fara í smíði á alveg nýjum vef frá grunni. Markmiðið var að búa til vef sem væri eins hraður, einfaldur og aðgengilegur og mögulegt væri. Öll hönnun og uppbygging kaupferlisins miðaði að því að koma áhugasömum viðskiptavinum frá fyrstu heimsókn og í gegnum greiðsluferlið með eins litlum núningi og hægt var.
Mitt hlutverk
Í þessu verkefni sá ég um alla hönnun og forritun vefsins. Verkefnið fól í sér nokkuð nýjar áskoranir fyrir mig, meðal annars að kynna mér Tebex Headless API, hvernig það virkar og hvernig hægt væri að samþætta það við Next.js. Ég hannaði og forritaði allan vefinn frá grunni, þar á meðal forsíðuna, verslunina, greiðsluferlið og aðrar síður sem tengjast samfélaginu. Auk þess sá ég um uppsetningu og hýsingu vefsins á eigin innviðum Spaugs. SEO, afkastamælingar og hraðabestun voru einnig mikilvægur hluti af verkefninu, þar sem eitt af meginmarkmiðunum var að vefurinn væri eins hraður og mögulegt væri og veitti notendum góða og hnökralausa upplifun. Að lokum fór ég ítarlega yfir allt kaupferlið og prófaði mismunandi notendaflæði til að ganga úr skugga um að verslunin, greiðslur og tengingar við Tebex virkuðu rétt áður en vefurinn fór í loftið.
Lærdómur
Ég skal vera fyrstur til að viðurkenna að ég er ekki bakendaforritari. Ég reyni almennt að halda mig við framendaþróun, en í þessu verkefni ákvað ég að stíga aðeins út fyrir mitt helsta sérsvið og láta reyna á mig. Eftir að hafa kynnt mér þau API sem Tebex býður upp á ákvað ég að nota Headless API-lausnina þeirra og hóf vinnu við að samþætta hana við vefinn. Ég skal viðurkenna að sú vinna reyndist mun flóknari en ég hafði upphaflega gert ráð fyrir. Þegar hönnun og framendaþróun voru komin vel á veg hófst vinna við Tebex-tenginguna. Þá kom fljótlega í ljós að ekki var hægt að sækja allar þær upplýsingar sem ég þurfti beint úr API-inu. Ég notaði því Claude Code sem aðstoðartæki við að útfæra API-tengingarnar og setja upp einfaldan gagnagrunn sem hélt utan um þær viðbótarupplýsingar sem vantaði. Ég notaði Claude Code einnig til að yfirfara uppbyggingu API-tenginganna og hjálpa mér að koma auga á möguleg vandamál áður en þau gætu orðið að tæknilegri skuld síðar. Þetta var krefjandi en jafnframt mjög skemmtilegur hluti verkefnisins. Ég lærði mikið um samþættingu við ytri kerfi, vinnu með API og mikilvægi þess að hugsa vel um uppbyggingu og gagnastreymi áður en lausnin stækkar.
Hvað hefði ég gert öðruvísi?
Því miður var verkefnið unnið undir töluverðri tímapressu og ég hefði gjarnan viljað geta varið meiri tíma í fínpússun. Það eru ýmsir hlutar vefsins sem virka vel en eru, að mínu mati, ekki alveg fullkláraðir. Ég hefði viljað bæta við fleiri micro-interactions, fínstilla hönnunina á nokkrum stöðum og gefa mér meiri tíma til að prófa mismunandi lausnir og útfærslur. Þrátt fyrir það er ég mjög ánægður með hvernig verkefnið þróaðist og hvernig vefurinn virkar í dag. Verkefnið náði þeim meginmarkmiðum sem lagt var upp með og útkoman varð hraður, einfaldur og notendavænn vefur sem leysti helstu vandamálin sem eldri lausnin hafði.