Öll verkefni

mitt.spaugur

Stjórnborð fyrir hýsingu og innviði Spaugsþ

Óvirkt
mitt.spaugur.is
mitt.spaugur

Yfirlit verkefnisins

Spaugur býður upp á hýsingu fyrir vefi, sýndarvélar og DNS-þjónustu. Áður hafði öll þessi þjónusta verið stýrð af okkur og viðskiptavinir höfðu takmarkaðan aðgang að því að stjórna þjónustunni sjálfir. Slík nálgun virkaði vel í byrjun, en eftir því sem þjónustan stækkaði varð sífellt augljósara að of mikill tími fór í handvirka vinnu fyrir verkefni sem viðskiptavinir ættu í raun að geta sinnt sjálfir. Það var jafnframt ekki sanngjarnt gagnvart viðskiptavinum okkar að þeir gætu ekki einfaldlega skráð sig inn, fengið yfirsýn yfir þjónustuna sína og stjórnað henni sjálfir. Því hófst vinna við nýtt stjórnborð sem átti að leysa þetta vandamál. Markmiðið var að hanna einfalt og aðgengilegt kerfi þar sem notendaupplifun væri í forgrunni. Einfaldleiki var eitt af lykilhugtökunum í hönnun stjórnborðsins. Það átti að vera skýrt, einfalt og auðvelt í notkun. Viðskiptavinir okkar eiga ekki að þurfa að eyða tíma í að læra á flókið kerfi. Þeir eiga að geta skráð sig inn, pantað þjónustu og byrjað strax að stjórna henni á einfaldan og skilvirkan hátt.

Mitt hlutverk

Stjórnborðið er byggt í Next.js og TypeScript. Fyrir þetta verkefni valdi ég að nota Pages Router þar sem sú uppsetning hentaði teyminu betur en App Router. Ég sá alfarið um hönnun og forritun framendans og afhenti verkefnið síðan til Kríu Elínarbur, sem tók við þróun bakendans og API-tengingum við þau kerfi sem við notum í rekstri þjónustunnar.

Stærra verkefni

Stjórnborð Spaugs er eitt af stærri verkefnum sem ég hef tekið að mér. Rekstur hýsingarþjónustu er flókinn og mörg ólík kerfi og ferli þurfa að vinna saman. Þegar ég hóf verkefnið áttaði ég mig fljótt á því að umfangið væri mun meira en að sýna viðskiptavinum hvaða þjónustur þeir væru með. Eftir því sem hönnunin þróaðist komu sífellt fleiri þarfir í ljós. Viðskiptavinir þurfa ekki aðeins yfirsýn yfir þjónustuna sína heldur einnig að geta stjórnað flóknari þáttum sjálfir. Fyrir sýndarþjóna þarf meðal annars að vera hægt að stjórna stýrikerfum, netstillingum, IP-tölum og Reverse DNS. Samhliða því þurfa notendur að hafa skýra yfirsýn yfir reikninga, greiðslustöðu og hvenær næstu greiðslur eru á gjalddaga. Annar mikilvægur þáttur var upplýsingagjöf þegar bilanir eða truflanir koma upp. Viðskiptavinir þurfa að fá skýrar og sýnilegar tilkynningar um stöðu kerfa, þannig að þeir viti strax hvort þjónustutruflun sé þekkt og í vinnslu. Markmiðið var því að finna einfalda leið til að miðla mikilvægum rekstrarupplýsingum án þess að gera stjórnborðið yfirþyrmandi eða flókið í notkun.

Lærdómur

Þetta verkefni hefur verið eitt það skemmtilegasta sem ég hef unnið að. Það var sérstaklega gaman að þróa hönnunina áfram eftir því sem nýjar þarfir komu í ljós og vinna úr þeim ábendingum sem ég fékk þegar ég sýndi öðrum hönnunina. Verkefnið þróaðist því stöðugt í gegnum ferlið og margar af betri lausnunum urðu til eftir samtöl, endurgjöf og frekari skoðun á því hvernig notendur myndu raunverulega nota kerfið.

Hvað vantar?

Verkefnið er enn í þróun og ýmislegt á eftir að bæta og útfæra frekar. Hönnunin var unnin með það að markmiði að koma sýnilegu og nothæfu kerfi sem fyrst fyrir framan bakendateymið, þannig að hægt væri að koma þróun kerfisins sjálfs af stað án þess að bíða eftir fullkomlega frágenginni hönnun. Mér finnst hönnunin enn þurfa meiri fínpússun. Mig langar sérstaklega að bæta við fleiri micro-interactions og animations á lykilstöðum í kerfinu, þannig að notendur fái skýrari endurgjöf þegar þeir ýta á takka eða framkvæma aðgerðir. Markmiðið með því er ekki aðeins að gera upplifunina líflegri, heldur einnig að bæta skýrleika í notkun. Með réttri sjónrænni endurgjöf er hægt að sýna notandanum að kerfið sé að vinna, draga úr óvissu og koma í veg fyrir að hann haldi að kerfið hafi frosið eða að eitthvað hafi farið úrskeiðis.

Skjáskot

Yfirlitið
Yfirlit
Reikningayfirlit og greiðslumátar
Reikningayfirlit
Stakur reikningur
Stakur reikningur
Tilkynningaskúffan
Tilkynningaskúffan
Greiðsluferli við pöntun á nýrri þjónustu
Greiðslugluggi við pöntun á nýrri þjónustu
Þjónustuyfirlit
Þjónustuyfirlit
Kerfisstaða og atvik
Kerfisstaða og atvik

Tæknin

Next.js (Pages Router)TypeScriptTailwind CSSBase UIFramer Motion

Spaugur.is

Fyrirtækjavefur og hýsingarþjónusta Spaugs.