Öll verkefni

Spaugur.is

Heimasíða Spaugs frá 2024 - 2026

Forsíða Spaugur.is
Forsíða Spaugur.is

Stórasti vefurinn

Spaugur var upphaflega stofnað til að halda utan um hugbúnaðarvörur sem við vildum þróa sjálfir. Með tímanum fórum við þó að taka að okkur vefverkefni fyrir mismunandi aðila, aðallega erlend fyrirtæki, og áður en við vissum af vorum við komin með ágætis safn af verkefnum á bakinu. Á þessum tíma vorum við ung, metnaðarfull og líklega aðeins of sjálfsörugg. Þegar við ákváðum að leggja meiri áherslu á íslenska markaðinn fannst okkur því rökréttasta næsta skrefið vera að smíða, að okkar mati, flottasta fyrirtækjavef landsins. Það var kannski ekki hóflegasta markmið í heimi, en það lýsir ágætlega hugsunarhættinum sem við vorum með á þeim tíma. Vefurinn var upphaflega smíðaður árið 2024 og hefur síðan verið breyttur og bættur eftir því sem fyrirtækið hefur þróast. Sumt úr upprunalegu hönnuninni hefur staðist tímans tönn, annað alls ekki, en vefurinn sýnir ágætlega hvernig bæði fyrirtækið og við sjálf höfum þróast frá því að verkefnið hófst.

Mitt hlutverk

Ég sá um að hanna vefinn í Figma í upphafi, en meðstofnandi minn, Kría Elínarbur, sá um fyrstu forritun framendans. Eftir því sem tíminn leið fór ég sjálfur að sjá um breytingar, viðbætur og áframhaldandi þróun á framenda vefsins.

Hvað hefði ég gert öðruvísi?

Í hreinskilni sagt hefði ég ekki gert neitt öðruvísi. Vefurinn náði þeim markmiðum sem við settum okkur, jafnvel þótt hann hafi kannski aldrei orðið „flottasti vefur Íslands“. Það var ótrúlega skemmtilegt að hanna og byggja vefinn og hann gaf mér gott tækifæri til að prófa mig áfram með mismunandi hugmyndir, hönnunarstíla og útfærslur. Fyrir mér er það stór hluti af virði verkefnisins.

Skjáskot

Forsíðan
Forsíða Spaugur.is
Netverslanir
Netverslanir
Greiðslugáttir og hraði
greiðslugáttir og hraðatölur
Vefsíðugerð
vefsíðugerð
Um okkur
Um okkur
Hafðu samband
Hafðu samband
Verkefnatorgið
Verkefnatorg
Algengar spurningar og fótur vefsins
Algengar spurningar og fótur Spaugur.is

Tæknin

Next.jsTypeScriptTailwind CSSBase UIRadix UIFramer MotionPosthogi18nextTabler Icons

Spaugur.is 2.0

Ný heimasíða Spaugs.