Spaugur.is
Beturbættur vefur Spaugs frá grunni.
Bætum aðeins
Eftir að hafa skoðað aðeins betur hvað við vorum að gera og hugsað út í framtíðina varð frekar augljóst að við vorum svolítið út um allt. Við vorum lítið teymi að reyna að gera allt fyrir alla, sem hljómaði vel í hausnum á okkur en var ekki alveg að virka í raunveruleikanum. Við ákváðum því að einfalda hlutina aðeins og skerpa fókusinn. Á sama tíma vorum við byrjaðir að vinna að nýja stjórnborðinu fyrir Spaug, þannig að planið var fyrst bara að uppfæra gamla vefinn og tengja þetta allt betur saman. Svo fórum við aðeins betur yfir vefinn og hugsuðum eiginlega bara: já nei, þetta er alls ekki nógu gott lengur. Gamli vefurinn hafði verið okkur góður og þjónað sínum tilgangi vel síðustu ár, en bæði við og fyrirtækið höfðum breyst mikið síðan hann var smíðaður. Það var einfaldlega kominn tími á nýjan vef.
Mitt hlutverk
Teymið var upptekið við önnur verkefni, þannig að ég tók að mér að byrja að hanna og forrita nýja vefinn. Nýi vefurinn var byggður ofan á sama grunni og sá eldri, sem notaðist við Next.js og Pages Router. Kóðagrunnurinn var hins vegar orðinn tengdur við alls konar þjónustur og tækni sem við vorum hættir að nota fyrir löngu. Ég ákvað því að byrja á almennilegri tiltekt, henti út öllu sem var ekki lengur í notkun, fór í deep clean á kóðanum og uppfærði pakkana og tæknina yfir í nýrri útgáfur. Við vorum líka búnir að ákveða að breyta aðeins um stefnu með hönnunina. Eldri vefurinn hafði meira „creative studio“ yfirbragð, en með nýja vefnum vildum við færa okkur aðeins meira í átt að corporate útliti. Hann átti samt ekki að verða leiðinlegur eða stífur, heldur bara aðeins þroskaðri og betur í takt við það fyrirtæki sem Spaugur var orðinn.
Hvað svo?
Vefurinn er enn í vinnslu og fer í loftið þegar nýja stjórnborð Spaugs er tilbúið. Það er því enn slatti eftir að gera áður en allt verður tilbúið. Mögulega hafa einhverjir klókir tekið eftir því á skjáskotunum að það er enn gervigreindartexti og hálfklárað copy hér og þar. Það er einfaldlega hluti af því að verkefnið er enn í þróun og ýmislegt á eftir að fara í gegnum almennilega yfirferð og fínpússun. Þessi grein verður auðvitað uppfærð þegar nýi vefurinn og stjórnborðið fara formlega í loftið.
Skjáskot
Tæknin
mitt.spaugur.is
Þjónustu stjórnborð Spaugs.